mánudagur 6. september 2010 kl. 06:30

    Yfirlit notenda > Innskráning
Aðalsíða Aðalsíða
Yfirlit útgerða Yfirlit útgerða
Póststýring Póststýring
 
Innskráning
 Notandanafn: 
 Lykilorð: 
 
Tilkynningar
Varúð: Vegna óumbeðins pósts
Póststýring INmobil er afar þægileg og öflug leið til að stjórna því hverjir mega senda þér póst. Þú skráir einfaldlega inn netföng sem mega eða mega ekki senda þér póst og þegar þú ert í landi getur þú áframsent allan póst heim.

Undanfarið hefur þó borið á því að notendur hafi fengið ruslpóst eða annan póst sem ekki átti erindi til þeirra og er upprunninn úr tölvuominum Sober. Þar er ekki um að ræða orminn sjálfan, heldur póst sem er gerður til þess að viðtakandi sæki orminn yfir vefinn sem er ekki mögulegt í INmobil eða þá að um ruslpóst er að ræða.

Ástæða þess að svona póstur getur sloppið í gegn um póststýringu er m.a. sú að ormurinn er afar vel skrifaður og notfærir sér að sá sem hefur nafn móttakandans, þ.e. INmobil notandans í netfangabók sinni eða jafnvel í eldri póstum og falsar netfang sendanda tilviljanakennt jafnframt því sem hann sendir út gríðarlegt magn pósts. Því er vissulega möguleiki að þannig hittist á að viðtakandi fái ruslpóst frá netfangi sem hann treystir og einnig er sá möguleiki fyrir hendi að einhver annar af móttakendum skeytisins samþykki það í gegn en Sober sendir skeyti á allt að 75 móttakendur í einu.

Að ofansögðu viljum við taka fram að við hvetjum INmobil notendur til að ítreka við hvern þann sem fær netfang þeirra uppgefið að gæta vel að því að tölva viðkomandi sé með rétt uppfærðu veiruvarnaforriti (sjá hér). Einnig viljum við taka fram af þessu tilefni að ekki er hægt að ábyrgjast að viðtakandi í INmobil kerfinu fái ekki óumbeðinn póst, jafnvel þótt hann hafi stillt póststýringu rétt.
Yfirlit notenda
Í þessum hluta vefsins geta einstakir notendur skoðað skráða notkun sína sundurliðaða eftir einstökum skeytum.
Yfirlit útgerða
Þessi hluti vefsins er fyrir útgerðir og fjarskiptafulltrúa til þess að vinna með reikningagerð og uppgjör.